Þó að slökkt sé á götulýsingum er ljósmengunin mjög mikil. Gaman að sjá hver máttur hugans er mikill og sannar það að hver sem hugmyndin er þá er alltaf möguleiki á að framkvæma hana. Notist með varúð.
Sveitin heima // 24. september 2006 klukkan 23:56
Það er ekki hægt að segja annað en að Borgarfjörðurinn sé einn fallegasti staður á landinu, sérstaklega í blanka logni að kvöldi.
Tók þessa myndi í kvöld yfir Bæjarsveitina mína þar sem norðurljósin og stjörnurnar dansa yfir sveitina mína. Merkilegt hvað maður missir af þessu sjónarspili þegar maður flytur í þéttbýli.
Á fimtudaginn 28. sept kl 22.-22.30 verður hinsvegar slökkt á götulýsingu á nánast öllu suðvesturhorninu (Reykjavík, Kópavogur, Hafnafjörður, Akranes, Keflavíka etc) í tilefni upphafs Kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Þá verður nú vonandi hægt að njóta svona útsýnis á þessum stöðum.
Er þetta rétt? Er þetta í raun og veru Leoncie í X-Factor í Bretlandi?!?!?