Ég sjálfur Mín hugarangur Nepal hugbúnaður ehf. PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar á MP3 Hér má nálgast ýmsar skrárHér eru ýmis verk Hér er myndasafnið mitt
« mars 2002 | Forsíða | maí 2002 »
Kermit! // 30. apríl 2002 klukkan 22:39

Hvað er með öll þessi "hver ert þú?" test á netinu þessa dagana? Allaveg hér tók ég Prúðuleikaratestið....


You are Kermit!
Though you´re technically the star, you´re pretty mellow and don´t mind letting others share the spotlight. You are also something of a dreamer.


Óli Kermit, klukkan 22:39 | Aths. (7)
og hananú. // 29. apríl 2002 klukkan 23:25
Haltukjafti


og líka..
Óli þögli, klukkan 23:25 | Aths. (106)
Menning og fleira kukkl // 28. apríl 2002 klukkan 16:33

Já núna er þessi blessaði sunnudagur sem notaður er í að jafnasig eftir átök næturinnar sem hófust frekar seint þar sem ég skrapp á ofurbandið BER á breiðinni hér á akranesi með Hauki Blackmetal og ætluðum við sko aldeilis að mæta og trylla píkurnar, en þegar þar er komið eru ca 20 mans þarna inni en það var svosem ágætt þar sem maður þekkti svona 15 mans ;P Held að fólkið sem var þarna hafið verið mest úr tveimur crewum, björgunarsveitarcrew og hróaahattar crew ásamt einhverjum einstæklingum sem mættu með sjálfum sér þarna og voru asnalegir. Djúpalauginn mætti líka þarna og hélt greinilega að þarna yrði game í gangi en það var svo ekkert í gangi þarna og enginn ennti að reyna við glamúrgelluna sem var virkilega óaðlaðandi í þessari blessuðu djúpulaug þó að hún hefði alveg útlitið með sér, gaurinn var líka lúði en samt reyndu nú einhverjar skagagellur að keppast við að reyna við hann og ekki veit ég hvernig stiginn fóru í því...
Við Haukur yfirgáfum geimið frekar snemma og fórum í vilt eftirparty í jónsbúð þar sem við gæddum okkur á laxapate, kartöflusalati og ýmsum kræsingum.. Ég var annars bara mættur heim um hálf 4 þannig að þetta var nett og snöggt djamm bara, alveg passlegt.

Núna ligg ég bara heima og er búinn að vera glápa á þetta blessaða sjónvarp. Formúlan, svo SilfurEigils, Mótur og svo einhverji glæpaþættir á S1.. og já þynkan er í heimsókn líka.

Nú eru allir að taka þetta blessaða tékk hvaða bloggari maður er og ég gat auðvitað ekki verið minni maður og tók það og komst svo sannarlega að því að ég á að vera bloggarinn BRE eða Bjarni Rúnar, sniðugt það :Þ Svo er hér includið úr þessu prófi hér fyrir neðan.

Jæja ég ætla halda áfram þessari leti og panta mér pizzu. Maske maður plati einhvern til að panta með sér pizzu?


Þú ert Bre

Þú hefur yndi af löngum stundum fyrir framan tölvuskjá fullan af óskiljanlegum perl galdraþulum og fílar að deila því með umheiminum hvað þú ert klár tölvukall.

Taktu hvaða bloggari ert þú prófið hér!

Óli BRE, klukkan 16:33 | Aths. (5)
Veturinn gerður upp // 24. apríl 2002 klukkan 0:31

Jæja þá er þessum þunga og erfiða vetri að ljúka, síðasti vetrardagur í dag.

Þó ég hefi ekkert verið alltof mikið var við snjó og vont veður, maske vegna þess að ég vinn inni? Varla, þarf að keyra samtals 76km á hverjum degi undir Hafnarfjalli 2x á dag og veðrið hefur bara verið ágætt, aldrei verið veðurtepptur, þó það hafi nú verið lokað allavega 2x undir Hafnarfjalli í vetur, bara einusinni farið útaf undir Hafnarfjalli og einusinni lent í snjóflóði á Akranes þar sem allt er flatara en flatt getur verið.

Að mínu mati held ég að þessi vetur hafi verið ágætur :)

Óli gerir upp, klukkan 0:31 | Aths. (1)
Veikindi ofl // 19. apríl 2002 klukkan 0:33

Jæja ég hef ekki nennt að skrifa eitt né neitt hér nú að verða í mánuð, líklega margar ástæður fyrir því, butload að gera í vinnuni og ég hef ekki haft tíma til þess að monta mig af einhverju eða segja frá einhverju merkilegu hér. Auk þess að síðasti mánuður hefur einkennst af leti í frítímanum og rólegheitum. En hvað um það, þetta var bara svona nettur inngangur ;)

Nú er ég búinn að liggja í einhverri flensu drullu síðan á mánudaginn, þó að ég hafi asnast til þess flækjast í vinnuna á þriðjudaginn sem varð ekki til þess að bæta heilsuna og drattaðist til reykjavíkur í próf í ctec sem ég ætlaði að vera búinn að taka fyrir lifandis löngu, núna í dag tók ég mér líka frí í vinnunni til þess að jafna mig, og gengur það ekki nógu vel, en ætli ég reyni ekki að drattast á morgun í vinnuna og sjá hvaða staflar af vinnu bíða mín.. Sem kemur auðvitað ofan á annað að núna eru margir af mínum vinum að dimmitera í FVA og ég ætlaði að skella mér þangað til þess að sjá vini mína hoppa um og ærslast og gera grín að samnemendum sínum, en nei ég kemst ekki því ég hef móral yfir því að hafa lítið mætt í vinnuna í þessari viku og tel það best að reyna fara og gera eitthvað gagn, en ég óska ykkur bara góðs gengis og fæ að heyra sögurnar seinna krakkar :) Skemmtið ykkur vel krakkar ;) (Dagbjört, Lísa, Knútur, Jakob ofl).

Humm já, svo klesstist bíllinn minn einhverntíman um daginn og það í keflavík! Fer ekki aftur þangað í bráð, já þessum helvítis bílahrakförum mínum ætlar aldrei að linna, samt kemst ég alltaf hjá því að slasa mig, guðsblessunarlega (7 - 9 - 13).
Hef líka lítið tekið af myndum uppá síðkastið, aðalega vegna skorts á djammi og partyum og núna var ég að enda við að lána Knúti IXUSinn til Danaveldis í 3 vikur þar sem hann ætlar að mynda fulla dani á börunum þar, kannski fær maður eitthvað að birta af þeim myndum hér, hver veit. Svo þegar Knútur kemur aftur eru próf að verða búinn í skólum landsins og flestir komnir í sumarfrí og þá hafið þið og ég enga afsökun fyrir því að halda ekki party og hef ég heyrt að einn félagi minn ætli að halda grillveislur um hverja helgi í allt sumar ;) eins gott að hann standi við það ;)

Já við Knútur settum upp vefmyndavél í herbergið hans Knúts á Laugardaginn að mig minnir, sem vísar því miður ekki á hann heldur á rúntinn hér á akranesi, þannig að núna getið þið sparað ykkur peningana við kaup á ökutæki og benzini og skoðað rúntinn hér beint á vefnum mínum ;)

Veikimaðurinn, klukkan 0:33 | Aths. (3)
apríl 2002
eldra...
Ólafur er ungur kerfisfræðingur búsettur á Akranesi, hann hefur ákveðnar skoðanir á hlutum sem oft samrýmast ekki skoðunum annarra. Til að komast í samband við Ólaf má beita mörgum leiðum td. tölvupósturinn hans er olafur hjá nepal.is , msnið hans er kerfisgimp@hotmail.com og síminn hans er 8630441.
Knúið af Movable Type 4.1
Auk þess er þessi síða hönnuð sem tableless, XHTML 1.0 rétt og CSS rétt. Getfirefox.