Jæja loksins fékk ég nýju ferðavélina mín eftir rúmlega 3 vikna bið eftir að fá hana frá dell :)
Þessi nýja græja er Dell Inspiron 8100 ofur gripur með eftirfarandi specca ;)
Intel pIII 1Ghz mobile
256mb RAM
20Gb ATA-100 diskur
15" Ultra XGA+ TFT skjár (nær 1600x1200 í upplausn) á 32mb Geforce2 skjákorti
TV-OUT, Firwire, 2x USB, DVD, 3com 10/100 netkort og margt margt fleira flott :)
Ef ykkur langar voða mikið að sjá meiri specca bendi ég ykkur á að skoða það á dell.com
Jæja nú hef ég aka. Gonzi verið tekið hlutverið sem einn af vondu körlunum í Pacman leiknum sem hann Erling endurhannaði og útfærði og tek ég mig vel út í því hlutverki sem Erling gaf mér :) Starfslýsinginn er sú að ég elti elskulega gula Pacman og reyni að éta hann. Hljómar ekki flókið, en þetta er hörku djobb :) Já ég veit að það er ekki elskulegt af mér að elta hann á röndum og reyna hindra hann í því að éta fleiri gula punta en þetta eru bara þau hlutskipti sem ég fékk og er ánægður með, Pacman verður bara að passa sig! ;)
Ef smellt er hér má sjá nánari upplýsingar um mig í leiknum.
Einnig getur þú spilað betaútgáfu af Pacman leiknum hans Erlings hér og mæli ég með að allir skoði hann og sjái hvað drengnum hefur tekist vel til við útfærsluna á þessum klassíska leik :)