Já, IXUS fékk að taka margar myndir þessa helgina og náði hann að taka 259 myndir í 2 Partyum!
Á föstudagskvöld og fram á laugardag fékk hann að vera í fylgd með meðleigjanda mínum honum Knút í party hjá Helga Hafsteins uppí Skorradal þar sem ég lét ekki sjá mig vegna leti ;P
Myndir úr því partyi má fynna á myndasíðuni minni
Hinsvegar á laugardagskvöldið var svo haldið í vinnuparty NEPAL uppí Lundarreykjadal þar sem starfsmenn NEPAL og útvaldir sátu og fengu sér "Smá" öl ;)
Myndir af því má einnig fynna á myndasíðuni minni
Ekki skánar það hvað ég er óheppinn, því í morgun þegar ég kom út blasti fyrir mér bílinn minn og mölbrotinn framrúða eins og sést á myndinni hér til hliðar...
Það sem kom fyrir var að snjóhengja af húsinu sem ég bý í hafði fallið niður á bílinn minn og lent guðisélof BARA á framrúðuni í stað þess að lenda á húddinu eða þakinu á bílnum.
Nú er bara bíða eftir nýrri rúðu..